Síðan okkar !

Svona erum við!

05.09.2010 16:05

Freyja mín!

emoticon Sæl verið þíð!

Jæja þá kemur smá tilkynning frá Freyju litlu, í dag er hún búin að ganga með hvolpana í 64 daga. Þetta hélt ég að væri óeðlilegt en samkvæmt öllum þeim dýralæknum sem ég sat með á fundi nú um helgina (var á fundi í SLU í Uppsala þar er dýralæknaháskóli ;) getur þetta allt á sér eðlilegar skýringar. Svo allt á að vera í lagi með dúlluna mína, ég sem var orðin yfirmáta stressuð og taugaveikluð.

Freyja er búin að vera síðan á fimmtudag mjög þreytt, móð eins og hún væri komin að því að gjóta. En þetta er víst allt eðlilegt, dýralæknarnir segja að tíkur geti eðlilega gengið með frá 60 dögum allt upp í 72 daga?? afhverju jú vegna þess að þegar pörun á sér stað byrjum við að telja en gleymum því að tík getur GEYMT sæðið inní sér í allt að 5 daga. Og þá byrjar í raun sú talning sem á að telja eftir, einnig sem að á stundum ganga tíkurnar með í 2-3 daga fram yfir. 
Jæja allavega þetta hlýtur að fara koma, þetta er að ég held LEEEEEEEEENGSTA meðganga sem ég hef upplifað ;) hihihi ef þetta væri ég væri ég búin að þvo og strauja allt barnadótið fimm sinnum eða jafnvel oftar, mála barnaherbergið þrisvar sinnum og þrífa húsið algjörlega í tætlur (sem ég reyndar gerði þegar ég átti hann Stimma minn en hann kom tveimur vikum seinna en áætlað var, drakk heila flösku af laxerolíu til að koma mér afstað því jólin voru að koma hihihi ;)

En nú hlýtur þetta að fara koma hjá dúllunni. 
kv
Anna Berg og Co 
Flettingar í dag: 9
Gestir í dag: 3
Flettingar í gær: 12
Gestir í gær: 6
Samtals flettingar: 20635
Samtals gestir: 7748
Tölur uppfærðar: 28.1.2012 17:16:43

Vafraðu um

Anna Berg

Nafn:

Anna Berg

Afmælisdagur:

22/11/1972

Um:

Ég er mikill náttúruunnandi, elska fjölskylduna mína meira en allt annað í heiminum. Fjölskyldan er ástæða þess að mér líður vel ;) Fjölskyldan samanstendur af: Stebba sæta sem ég hef verið gift í 17 ár, Stefni litla/stóra sem er ný búin að fá bílpróf og bíl, Stimma okkar sem er svo kátur/fúll og svo er það skotturnar okkar Freyja og Frakkur sem eru svo óþekkir voffalingar ;)

Tenglar

Sýning Hrfí 6.október 2009

atburður liðinn í

2 ár

3 mánuði

22 daga