|
Síðan okkar ! Svona erum við! |
|
Blogg11.12.2009myndirnar komnar innKv Anna 6.12.2009Freyja og Frakkur!Fréttir af hundunum! Freyja litla byrjaði á blæðingum fyrir 3 dögum, því miður ætla ég ekki að para hana við Milton þetta sinnið. Ástæðan er helst sú að ég náði ekki að fara með hana í augnskoðun og augnskoðunin hennar er útrunnin, gotið yrði ekki samþykkt af HRFÍ svo það gengur ekki. Einnig er gott að hún fái frí núna og ég pari hana í sumar (Júlí/ágúst) með Mocca. Hvolpaeignin var henni erfið hún varð viðkvæm og ör, mér finnst hún rétt vera ná sér núna svo það er kannski best að hún hvíli sig. Þið sem eruð á hvolpalista og finnst langt að bíða eftir goti endilega hafið samband við hana Eddu, heimasíðan hennar er hér til hægri á síðunni minni. Hún væntir gots eftir Milton og Sunnu, einnig var systir Sunnu pöruð með Milton svo það eru væntanlegir nokkrir sætir og löglegir hrfí Langhundahvolpar á næstunni. Frakkur dafnar vel er að verða að fallegum langhundi, setti inn myndir af þeim mæðginum. Þau eru svo falleg saman. Sæl að sinni Anna og Co. 6.12.2009Danskeppni á Broadway!Helgina 29-30 nóvember var risa danshelgi. Strákarnir voru í dansbúðum frá föstudegi til laugardags. Á laugardeginum tók við mikil danssýning á vegum dansfélags Borgarfjarðar, tókst þessi sýning alveg með ágætum fullt af flottu nýju efni og bara mjög flott sýning. Á sunnudeginum tók við mikil keppni á Broadway þar sem Stefnir ásamt sinni dömu (Vigdísi) stóðu sig með prýði, urðu í 3 sæti af 5 keppnispörum. Þetta er fremur óhefðbundin keppni þar sem útgeislun er dæmd fremur en tæknin. Styrmir og Karlotta tóku ekki þátt þar sem keppnin á Broadway er fyrir keppendur í K og F flokki. Þau eru enn í A, fara uppí K eftir jól ;). Til hamingju strákar mínir þið eruð flottir, munið það. 29.10.2009Dansi, dansi, dans!Sæl aftur elskurnar! Lottómót framundan og Strákarnir mínir eru orðinir dansóðir. Þeim hefur farið svo mikið fram og leggja mikið í íþróttina, æfa 2 til 3 tíma á dag, við erum búin að búa til matarplan næstu tvær vikur fram því þeir ætla hafa mikið þol og þrek á Lottómótinu En nú ætla ég að muna að taka flottar myndir á mótinu og setja inná vefinn. Það er svo ferlega gaman að sjá hversu flottir krakkarnir eru þegar þau eru komin í allan skrúðan. Verið þið bless að sinni Anna Berg 29.10.2009Sýning Hrfí!Farið var á sýningu Hrfí 4. okt með prinsessuna Freyju von Stenhavens. Dómarinn var voðalega vinsamleg frú frá Danmörku og fannst auðvitað langhundarnir okkar á Íslandi voða voða sætir en grrrrrrrrrrrrrr, Freysa fékk ekki meistaratitil. Nei bara djók er ekkert fúl, Freyja sæta var í fyrsta sæti og Sunna var í því öðru. Þær fengu góða umsögn en því myður fengu tíkurnar í þetta skiptið engan meistaraborða. Svona er þetta bara stundum. Aftur á móti fengu allir rakkarnir Sómi "hinn ungi", Milton "the new dog in town" og Mocca "loverboy" allir meistaraborða og flottar umsagnir. Mocca náði svo þeim merka árangri að verða í þriðjasæti sem flottasti hundur sýningar Vá segi ég bara og Bravó Það var einsog alltaf ferlega gaman að hitta alla langhundana og já ykkur eigendur líka. En nú verðum við að hittast sem ALLRA fyrst. Það er svo gaman að geta hisst undir öðrum kringumstæðum en bara á sýningarsvæðinu. Sendi ykkur langhundaeigendum póst innan tíðar um hitting. Kær kveðja Anna og co. 2.10.2009Sýning Hrfí 4.októberJæja þá er komið að 3. sýningunni hennar Freyju litlu. Hún er orðin mjög fín eftir hvolpaeignirnar, nema hvað hárin á eyrunum eru enn svolítið tætt. Því myður þá er ekki hægt að sýna Frakk litla þetta skiptið því hann er ekki orðin 4. mánaða litli pjakkurinn. Vonandi gengur allt vel með sýninguna og mig hlakkar afar mikið til að hitta hina langhundaeigendurna, það er alltaf svo gaman að sjá hvernig ræktuninni gengur og heyra hvað aðrir eru að bralla. Vonandi að Milton gæi verði á staðnum, hef ekki heyrt frá Eddu með það en fannst einsog hún talaði um það seinast þegar við spjölluðum. Jæja læt þetta ekki verða lengra í bili. Ætla taka myndir af sýningunni (Stefnir minn tekur þær eða Stimmi minn) og set þær inná vefinn umleið og allt er yfirstaðið. Krossa fingur um að allt gangi vel og að dómaranum líki tíkinn, maður veit aldrei með vissu hvað þeim finnst um hundana ;). Bless bless Anna og co 5.9.2009Haust 2009Skólinn byrjaður hjá mér, Stefni og Styrmi. Stebbi okkar er á sjó. Við erum að reyna eftir besta megni að halda velli með allt sem til þarf. Passa þarf að hafa ekki of mikið að gera hihi og þar kem ég ekki sterk inn, er alltaf í tómu tjóni með alltof mikið á minni könnu. Í dag ætlaði ég að fara upp að Surtshelli og halda áfram með Bs verkefnið mitt en því myður er ég föst við klósettskálina og rúmið mitt. Það er einhver leiðinda lynta í mér, er búin að vera hálf lasin í nokkra daga. Vona að fljótlega lagist þetta. 12.8.2009Síðan komin í lag!Sælt veri fólkið! úps þurfti að fá bréf í pósti frá þér Edda mín til að fatta það að síðan mín var runnin út. Greiddi um hæl og viti menn síðan er komin inn aftur. He he ég er svo lélegur bloggari að það hálfa væri nóg. Nóg um það. Myndir af hvolpunum koma hvern næsta dag inná bloggið, þarf að fá lánaða vél þar sem drengirnir mínir eru með vélina okkar í útlöndum. Þeir fóru til Danmerkur í seinustu viku og koma ekki aftur fyrr en þann 23.ágúst. Hvolparnir braggast vel og eru orðnir mjög skinugir. Ég hef verið með tilraunastarfsemi að gera þá húsvana frá því þeir fóru að ganga og það hefur gengið afar vel. Sá stóri pissar vart inni né kúkar (þó gerast slys auðvitað) en sá litli er aðeins tregari hann pissar alltaf úti en á til að kúka inni í forstofu við hurðina ;). En ég upplifi að þessi tilraun mín hafi lukkast bærilega þar sem þeir eru nú að verða 8 vikna og við það að vera húsvanir það er frekar vel af verki staðið hjá þessum köppum. Hann Freyr er seldur til Davíðs og Kristjáns (1/2 kaup ég held hinum helmingnum), það á bara eftir að selja Frakk litla. Skrifa meira þegar ég hef sett inn myndir af köppunum. kær kveðja í bili Anna Berg 13.7.2009Stefnir Ægir vinnumaður!Miklar breytingar hafa orðið á högum Stefnis nú í sumar. Hann ákvað allt í einu að setja markið á það að ná langt í dansinum og skipti um dansdömu. Þetta var mjög skyndileg og sársaukafull ákvörðun en hann var ákveðinn í þessu og reyndi eftir megni að gera þetta heiðarlega. Svona breytingar eru alltaf mjög erfiðar fyrir dansmakann sem er skilinn eftir og þótti okkur þetta afar erfitt. Við stóðum samt með honum í þessu en í fyrsta sinn fyrir alvöru sáum við að hann var að gera eitthvað sem hafði áhrif á hans líf til framtíðar án okkar afskipta að öllu leiti. Skrýtið en þroskandi ferli. Stefnir æfir nú dans 3x í viku og í vetur setur hann stefnuna á að æfa 4 - 5x í viku púff.... . Núna kemur hann þreyttur heim á kvöldinn eftir að púla saman með pabba sínum í vinnunni en fer samt á dansæfingar. Já ef hann vill verða góður þarf maður að standa sig, en mikilvægast af öllu er að hann finni að þetta gerir hann fyrir sjálfan sig, ekki fyrir neinn annan við viljum gefa honum stuðning en það er engin pressa af okkar hálfu. Stefnir er alveg jafn góður hvort heldur hann sé súper dansari eður ei. Það eina sem ég óska honum er að hann upplifi lífsfyllingu og hamingju, allt annað eru bara aukahlutir sem engu skipta þegar öllu er á botninn hvolft ;) Stefnir fer til Danmerkur í ágúst á eftir bróðir sínum, verður þar í 3 daga. Ætlar að heimsækja vini sína sem ekki náðist að hitta í fyrra. Þaðan fara hann og Styrmir til Brussel og dvelja þar í 10 daga hjá Dabba og Kristjáni. Jæja nóg af masi bless bless. 13.7.2009Myndir af Fermingu Styrmis!Halló skralló! Myndir af Fermingunni hans Styrmis eru á leiðinni, myndavélin bilaði sem geymdi allar myndirnar en um leið og við fáum vélina úr viðgerð setjum við inn myndirnar af þessum fallega og yndislega degi, deginum hans Styrmis ;) Styrmir var að ljúka vinnuskólanum fyrir helgi og er að taka að sér að gera garðinn hennar Röggu frænku fallegan, ætlar að klippa, reyta, græja og gera. Einnig ætlar Styrmir að hjálpa mér með mælingar á Bs verkefninu mínu og vera með mér þegar ég dreifi spurningarlistunum. Það er líka mikið öryggi að vera tvö saman. Maður er svo aleinn þarna uppá Hallmundarhrauni. Í ágúst fer Styrmir til Danmerkur að heimsækja Rene vin sinn, verður hjá honum í viku. Þaðan fer hann og Stefnir bróðir hans til Brussel að heimsækja Dabba og Kristján. Svo sumarið í sumar verður mikið ferðasumar. Bless að sinni 13.7.2009hvalper og billeder!Hej alle sammen! Nu er der kommet billeder af hvalperne, Freyr og Frakkur. Da jeg er ikke særlig god at sætte ind billeder og text sammen med dem må jeg forklare lidt her. Freyr er den som er lidt mørkere i farven og Frakkur har lidt lysere og bredere hoved. Men begge to er super smukke. De er lige startet at gå og det er først nu i morgen at de går ud af sin kurve. Så nu tro jeg at snart vil jeg have travlt med at gøre rent efter disse to drenger. Freyr er blevet solgt til min bro og hans kæreste, men Frakkur snakker vi om at beholde. Vi ved ikke helt sikkert hvad vi vil gøre med det, det må tiden vise. Hej hej til næste uge. Anna og Co. 13.7.2009Sumarið er alltof stutt!Sæl verið þið öll sömul! Nú er ég loksins komin að tölvuni aftur, allaf nóg að gera. Fann ekki þörf fyrir að skrifa um hvolpana fyrr en núna þar sem þeir hafa eitt meirihluta ævinnar í það að sofa og drekka hjá mömmu. Það gengur vel með þá og þeir dafna afar vel. við erum búin að skýra blessuðu greyin þó svo að presturinn hér í bæ vildi ekki koma heim og veita þeim skýrnarvottun hihi nei bara djók. Sá dekkri og sem kom fyrstur í heiminn heitir Freyr og er seldur til bróður mín og unnusta hans Davíð Samúelssonar og Kristjáns Stefánssonar. Sá yngri og er hann heldur ljósari yfirlitum heitir Frakkur og er ekki seldur enda höfum við ekki gert neitt stórt markaðsátak með hann ;). Umræða fer fram hér á heimilinum hvort við eigum að reyna halda þeim yngri hjá okkur, en við sjáum til með það. Ætla að setja myndir og þh. inná vef deildarinnar og sjá viðbrögðin við þeim, einnig að prófa auglýsa í Dv og mogganum. Freyr og Frakkur eru núna farnir að ganga aðeins um þó fara þeir meira afturábak en áfram hihi sætir litlir kútar. Læt inn nokkrar nýjar myndir af þeim og svo í næstu viku ættu þeir að vera farnir að gera einhver prakkarastrik. Kær kveðja að sinni Anna og Co. 15.6.2009Freyjas første hvalper født 14.juni 2009Freyja blev hvalpemor natten til søndag! 15.6.200914.Júní 2009 Fyrsta got Freyju!Freyja orðin hvolpamóðir! Það gerðist aðfaranótt sunnudagsins að hún Freyja okkar fæddi tvo hvolpa. Þetta er heldur snemmt þar sem við bjuggumst ekki við fæðingu fyrr en í fyrstalagi 23.Júní. En náttúran lætur ekki að sér hæða og fer sínar eigin leiðir. Burðurinn gékk vel, hún byrjaði að sína hríðar einkenni um kl. 01.00 (það sem við tókum eftir). Hvolparnir komu svo í heimin á bilinu 5 til 7 um nóttina, en þá hafði ég sofnað og hún reddaði þessu sjálf ;). Þetta eru tveir rakkar og eru þeir núna 150 og 130 grömm, ósköp litlir og bjargalausir. Set inn myndir fyrir þá sem vilja. kv Anna (hunda amma) 27.5.2009Fréttir af Freyju!Freyja litla voff! 27.5.2009Ferming 24.maí 2009Dagurinn hans Styrmis 24.maí 2009. Dagurinn byrjaði rólega allt var tilbúið við höfðum undirbúið veisluna vel. Begga tengdó og mamma höfðu staðið vaktina og bakað heil ósköp, ég gerði nánast ekkert. Stimmi svaf lengi eða til kl. 11, fór í sturtu og klæddi sig í fínu fötin sín. Kl. 13.30 var þrammað til kirkju, þar sem athöfnin hófst kl. 14.00. Styrmir var fermdur einn í Hvanneyrarkirkju, athöfnin var í alla staði yndisleg. Allt okkar fólk mætti í kirkjuna. Að athöfn lokinni var brunað yfir í veislusalinn sem er í háskólanum (LbhI) og þar gæddi fólk sér þar á guðaveitingum. Já nú er Stimmi okkar komin í fullorðinsmanna tölu. Þetta er svo ótrúlegt að vera með svona stóra stráka, mér finnst bara tveir dagar síðan þeir voru litlu strákarnir mínir. Kæru vinir og vandamenn takk fyrir að vera með okkur á þessum yndislega degi án ykkar hefði dagurinn ekki orðið svona góður. Takk fyrir gjafir og umhyggju sem þið sýnduð okkur á sunnudaginn. Takk fyrir okkur, Takk. Hafið það sem allra best Anna, Stebbi, Stefnir, Styrmir og Freyja voff 6.5.2009Prófin og ýmislegtSæl! 6.5.2009Ferming 24.maí 2009Styrmir er að fara fermast eftir bara 2 og 1/2 viku ;) Það er komin mikil spenna í loftið, förum í næstu viku og kaupum fötin á kappan. Það er margt sem þarf að gera fyrir ferminguna en það er búið að kaupa kertið, servíettur, sálmabók og gestabók. Salurinn er tilbúinn og kirkjan líka svo hvað er að vanbúnaði? jú bakkelsið ég kem ekki til með að hafa mikið að gera í því að baka þar sem ég á svo ferlega duglega mömmu og tengdamömmu þær bara redda þessu þær eru einsog maður kallar það "Hnallþórukerlingar". Styrmir kláraði messuskylduna í janúar og hann kann sálmana sem hann á að lesa utanbókar. Mikið rosalega er ég stolt af honum ég heiðinginn sjálfur. En það sem ég er stolt yfir er hversu hátíðlega hann tekur þessu og vill gera þetta vel. Þetta lýsir því hve vel hann vill gera þá hluti sem kveikja áhuga hans. Set inn myndir af fermingunni þegar allt er yfirstaðið. bless þangað til! 6.5.2009Íslandsmeistaramótið í SamkvæmisdönsumSæl verið þið! 6.5.2009Freyja ólétt?Sæl verið þið! Jæja smá fréttir af Freyju litlu, við höldum að pörunin hafi tekist. Spenar farnir að stækka og hún er að öllu leyti farin að haga sér smá öðruvísi. Svo já við höldum að það komi hvolpar um miðjan Júlí. Læt ykkur vita eftir 2 til 3 vikur því þá ætti pæjan að vera farin að tútna. Bæjó 17.4.2009Freyja pöruð!Pörun Freyju! Í gær fór ég með Freyju litlu til Eddu, og þar hitti hún Milton er kom úr einangrun 15.apríl sl. Milton beið ekki boðanna og smellti sér beint á pæjuna og reyndi allt hvað hann gat ;). Freyja varð eftir hjá Eddu (og Milton) í góðu yfirlæti. Í dag kemur hún heim og svo er bara bíða og sjá hvort allt hafi gengi vel, en það ætti að koma í ljós eftir einungis nokkrar vikur. Pörun Freyju og Milton gefur okkur langhundaáhugafólki tækifæri á að halda áfram ræktun langhunda án þess að þeir verið of innræktaðir ;) Frábært uppátæki hjá þér Edda að fá hann hingað til lands. Ættartöflu Freyju set ég inn sem og Ættartöflu Miltons hið allra fyrsta. Læt í mér hvort pörunin hafi borið ávöxt og hvernig það gengur. bless í bili 13.4.2009páskarnir og annir líðandi stundar!Páskahelgin eru búin að vera róleg og notalega. Við fórum á miðvikudaginn austur á land en Ísey litla var fermd á skírdag. Það var yndislegt að hitta alla fjölskylduna hans Stebbi og njóta góðra veitinga í faðmi fjölskyldunnar. 2.4.2009Freyja litla !Það gerðist í gær, 1.apríl að Freyja byrjaði á blæðingum. Mikið rosalega erum við nú spennt þar sem frábært tækifæri gefst núna að nota nýjan hund handa henni. Ekki það að hann Mokka er sko flottur en hann er ekki á förum úr landi. Við munum hafa samband við hana Eddu og tjá henni gleiðfréttirnar í kvöld ;) Svo nú er bara bíða og sjá hvernær pörunin mun fara fram en það verður þó aldrei fyrr en eftir miðjan apríl. Látum í okkur heyra hvernig gengur með fegurðardrottninguna hana Freyju. 2.4.2009Leiksýning Lína LangsokkurFrábær Leiksýning sem ungmennafélagið Íslendingur hefur sett upp í félagsheimilinu Brún. Leikstjóri er Ása og hefur henni tekist á töfravæddan hátt að setja saman frábært leikrit. Krakkarnir leika listavel, Lína sem leikin er af Sigrúnu Rós er alveg frábær, Anna og Tommi sem leikin eru af Klöru og Stefni okkar eru mjög þæg og stillt. Já þetta er alveg frábær sýning og ekki er hægt að minnast á hana án þess að nefna löggurnar og hana Prúsulínu en þau eru alveg snilldarvel leikin af Hafþóri, Arnari og henni Þórunni. Ég gef þessari sýningu 9 af 10 í einkunn. Frábært stykki sem vert er að fara á ;) Til hamingju öll með sýninguna. 2.4.2009Pæling dagsins við í núinu!Pælingar ! Við erum á fleygiferð í kapphlaupi við tímann hvern einasta dag. Það getur ekki verið rétt að lífið eigi að vera svona? erum það ekki við sem ráðum ferðinni? Jú, ef maður gæti minnkað lífsgæðakröfurnar smávegis þá myndi þetta ekki vera svona. En hvernig á maður að gera það? Planið í sumar er það að reyna fara í hjóla- og gönguferðir, og að fríin okkar saman verði hér heima í ró og næði, sofa, labba, spjalla, leika, spila og bara njóta. Ekki spreðast afstað í ferðalag bara til að geta sagt að maður sé að fara eitthvað. Nei heldur ætlum við að reyna bara taka frí til að hlaða upp batteríin sem eru orðin nánast tóm. Ég get allavega ekki mikið meira af þessu stress lífi. Svefninn er orðin órólegur því það keyrir allt í hausnum á manni, er maður að gleyma einhverju og er allt í lagi allstaðar, er skatturinn að ná öllu frá mér, get ég borgað næstu mánaðarmót, hver er framtíðin og svona er þetta dag eftir dag, viku eftir viku. Svo við segjum þessu stríð á hendur og breytum vörn í sókn með því að slaka á kröfunum og byrjum að njóta ;) og vitiði okkur hlakkar bara svolítið til ;) Vona að þið hin þarna úti ætlið að gera hið sama núna og í sumar byrja njóta þeirra stundar sem er núna, hægjum á kröfunum þá minnkar kapphlaupið. Knús til ykkar Flettingar í dag: 1 Gestir í dag: 1 Flettingar í gær: 4 Gestir í gær: 3 Samtals flettingar: 5617 Samtals gestir: 1918 Tölur uppfærðar: 14.3.2010 01:49:39 |
Vafraðu umEldra efni Anna Berg Nafn: Anna BergTölvupóstfang: nem.annaberg@lbhi.isAfmælisdagur: 22/11/1972Um: Ég er mikill náttúruunnandi, elska fjölskylduna mína meira en allt annað í heiminum. Fjölskyldan er ástæða þess að mér líður vel ;) Fjölskyldan samanstendur af: Stebba sæta sem ég hef verið gift í 14 ár, Stefni litla/stóra sem er ný fermdur, Stimma okkar sem er svo kátur/fúll og svo er það skottan hún Freyja sem er svo óþekkur voffalingur ;)Tenglar |